Þriðjudaginn 22. nóvember í næstu viku verður haldið alvarlegasta pókermót síðari ára í hlöðunni í gufunesi.
Ef þú ert kynþroska strákur þá ertu mættur á þetta pókermót, það er ekkert flóknara en það!
Það verða veitingar í boði NFBHS og mögulega FIFA uppi og eitthverjir þættir í gangi á tjaldinu fyrir þá sem hafa ekkert pokerface og detta snemma úr leik.
Mótið hefst klukkan 19:00 stundvíslega, ef þú mætir eftir að mótið er hafið þá færðu ekki að keppa.
Það verða að sjálfsögðu bilaðir vinningar í boði fyrir meistaran sem vinnur mótið, menn voru eitthvað að tala um að eyða fúlgu í vinningana..
Jæja strákar (og kannski stelpur).. það er loksins komið að FIFA móti Borgó sem ALLIR halar í Borgó hafa verið að bíða eftir frá því busuninni lauk!
Þetta stórfenglega mót verður haldið í hlöðunni í Gufunesbæ þriðjudagskvöldið 8. nóv, kl. 20:00 og er opið öllum framhaldsskólanemum, fólk úr Borgó og úr grafarvoginum hafa auðvitað forgang!
Mótið byrjar kl 8 og það verða tvær stöðvar. Ein keppni á risatjaldi í hlöðunni og önnur keppni á efri hæð hlöðunnar í heví kósý sófum og 42 tommu flatskjá.
FIFA 12 að sjálfsögðu, alls ekki láta þig vanta ef þú ert með punghár!
Jæja elsku Borgarar, nú getið þið loksins innskráð ykkur á ykkar eigin notendanafn og séð það sem enginn annar sér á síðunni. Ef þið vitið ekkert hvað ég er að tala um þá skuluð þið tékka á öll netföngin ykkar núna!
Það sem þið getið gert er t.d. tekið þátt á spjallborðinu sem þið megið endilega lífga aðeins við, það er í rauninni skylda. Á spjallborðið koma allar tilkynningar, auglýsingar, fréttir og slúður. Um að gera að tékka á því og taka þátt, það er aldrei að vita nema þú gætir haft áhrif!