JÁJÁJÁJÁJÁ!!!!
Nú er loksins komið að því. Hið árlega GLÆSIBALL!!!!
Það gerist ekki mikið betra en þetta. Glæsiballið verður haldið í sal skólans á fimmtudaginn 11. Febrúar og byrjar ballið Klukkan 19:30. Kennarar bera fram mat sem verður eftirfarandi: Aspassúpa í forrétt, Kalkúnn eða Lambakjöt í aðalrétt og í eftirrétt verður svo Súkkulaðikaka með ís.
Hin árlega glæsiballsmynd verður frumsýnd á staðnum og heldur Danni Deluxx uppi fjörinu ásamt frábærum leynigesti
Veislustjóri kvöldsins verður Gói. Miðinn kostar 3.500 og hefst miðasalan á mánudaginn.
Glæsiballið hefur aldrei litið betur út og verður enginn fyrir vonbrigðum
Valmynd
0 inni

Internet Explorer notandi? Smelltu hér til að ná í Internet Explorer 8